Nýskráning félaga í Sólóklúbbinn fer nú fram á Glætunni Bókakaffi
Laugavegi 19, 2. hæð, alla sunnudagana í maí, en annars fyrstu tvo hvers mánaðar.
Gefðu þér tvær mínútur og lestu um Sólóklúbbinn
Sólóklúbburinn er félagsskapur einhleyps fólks á aldrinum 30 – 50 ára. Tilgangur félagsins er að gefa því fólki sem býr einsamalt, með börnum sínum eða án þeirra, kost á því blanda geði með öðrum sem eru í líkri stöðu. Skipulagning á viðburðum og samkomum félagsmanna fara öll fram á vefnum, þ.e. sólóvefsíðunni sem er hjarta félagsins, þar geta allir meðlimir fylgst með því sem er í gangi, lagt sitt til málanna og spjallað saman. Innan klúbbsins starfa fjórar nefndir, en þær eru:
Kaffihúsanefnd, er annast hinn reglulega kaffihúsahitting sólófélaga, sér um mótttöku á nýjum félagsmönnum og innskráningu þeirra í félagið. Öllum félagsmönnum er gert að skrá sig undir fullu nafni á vefsvæðinu og vera með skýra mynd af sér þar. Til að eiga þess kost að ganga í félagið verða áhugasamir að skrá sig á vefinn og koma á kaffihúsafund, eiga þar viðtal við nefndina og fylla út eyðublað, svo opna megi aðgang fyrir viðkomandi á Sólóvefnum.
Útivistanefnd, er sér um skiplagningu á gönguferðum og fjallgöngum. Alltaf hefur verið til staðar innan hópsins góður kjarni er hefur ástundað reglulega fjallgöngur allt árið um kring.
Skemmtinefnd, er heldur uppi fjörinu. Nokkrar skemmtihátíðir eru orðnar fastur liður á ári hverju, má þar nefna árshátíðina, jólahlaðborðið, óvissuferðina, keilumót o.fl. Einnig eru fjölmargir félagsmenn jafnan duglegir við að koma með hugmyndir sjálfir og hrinda þeim í framkvæmd, má þar nefna allt frá bíóferð eina kvöldstund og til bústaðaferða yfir heila helgi.
Siðanefnd, en það er sú nefnd innan félagsins sem flestir óska eftir að hvað sjaldnast þurfi að koma saman og sú hefur verið raunin. Nefndin tekur á málum er varða hugsanleg frávik/brot á lögum eða siðareglum Sólóklúbbsins. Sólóklúbburinn er félagsskapur fólks er jafnan leitast við að sýna félagsmönnum sem og öðrum virðingu og hlýhug.
Félagið var formlega stofnsett 17. febrúar 2007 og hefur frá þeim tíma veitt fjölda fólks gleði og lífsfyllingu. Stjórn klúbbsins skipa sjö félagar. Lög og siðareglur félagsins eru skýrar og öllum félagsmönnum að sjálfsögðu aðgengilegar.
Finnist þér, lesandi góður að þessi félagsskapur gæti höfðað til þín, þá ertu auðvita hjartanlega velkomin í hópinn.
Langar þig að tilheyra frábærum hópi og gera skemmtilega hluti í góðum félagsskap? Félagsskap þeirra sem eru á svipuðum stað í lífinu og þú ert og gaman væri að eiga skemmtilegar stundir með. Fullt af viðburðum, ferðum eða uppákomum, þú velur hvort þú vilt sýna frumkvæði, taka þátt eða bara fljóta með - þitt er valið:)